Heimildarmaður People segir söngkonuna Janet Jackson vera spennta fyrir að byrja syngja og fara upp á svið aftur. En hin fimmtugu söngkona eignaðist sitt fyrsta barn í byrjun árs og fréttir bárust af skilnaði hennar og viðskiptamannsins Wissam Al Mana fyrr í mánuðnum.
„Janet er sjálfstæðust af öllum úr Jackson fjölskyldunni,“ sagði heimildarmaðurinn. „Hún vill komast aftur upp á svið á næstu árum, það er möguleiki að hún fari á tónleikaferðalag.“