Beyoncé á að eiga tvíburana sem hún gengur með von bráðar og var því haldið steypiboð í Beverly Hills á laugardaginn. Boðið var með afrísku þema og virtist poppdrottningin skemmta sér konunglega.
Meðal gesta voru Destiny's Child-vinkonur Beyoncé, þær Michelle Williams og Kelly Rowland, ólétta tennisstjarnan Serena Williams, LaLa Anthony og mamma Beyoncé, Tina Knowles.
Boðið var í afrísku þema, skreytingar í þeim stíl og púðar á gólfinu til þess að sitja á. Henna-tattúlistamaður var á staðnum og skreytti viðstadda. Afródansarar og trommarar sáu einnig um skemmtun og tóku Beyoncé og eiginmaður hennar nokkur spor þegar hún var búin að láta skreyta sig.
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on May 21, 2017 at 3:35pm PDT
All theses beautiful ladies at The Carter Push party! ❤️❤️
A post shared by Tina Knowles (@mstinalawson) on May 20, 2017 at 4:03pm PDT