Heidi Klum verður 44 ára von bráðar og er ánægðari með líkama sinn en þegar hún var á tvítugsaldrinum. Út er að koma ljósmyndabók með myndum af henni nakinni eftir breska ljósmyndarann Rankin.
„Af hverju ekki núna? Við ættum að fagna kvenlíkamanum, það skiptir ekki máli hversu gamlar þær eru,“ segist Klum svara þegar hún fái þá spurningu af hverju núna. Þessu greinir hún frá í samtali við Daily Mail.
Fjögurra barna móðirin viðurkennir að þykja gott að vera nakin enda var hún alin upp við að fara á nektarstrendur með foreldrum sínum þegar hún var lítil.