Stórleikarinn Brad Pitt hefur ekki alltaf verið eftirsóttur og fékk hann til að mynda ekki hlutverk í Staupasteini þegar hann fór í prufur fyrir þættina. Ástæðan var einföld, hann þótt ekki nógu fyndinn.
Samkvæmt Hello sá Jeff Greenberg um leikaravalið fyrir Staupastein en hann hefur meðal annars séð um leikaraval fyrir gamanþætti á borð við Modern Family. „Eina athugasemdin mín var, ekki fyndinn,“ sagði Greenberg um frammistöðu Pitts. Hann bætti því þó við að hann hefði verið fyndinn eftir þetta.