Raunveruleikastjarnan Scott Disick mætti til Cannes með Disney-stjörnuna Bellu Thorne upp á arminn. Hún var fljót að gefa út yfirlýsingu á Twitter eftir að Disick sást kela við fyrverandi kærustu sína, Chloe Bartoli, aðeins sólarhring eftir að Thorne var með honum.
Kvikmyndahátíðin í Cannes fer nú fram og hafa Hollywood-stjörnur verið áberandi í borginni. Samkvæmt heimildarmönnum Mirror mun Disick hafa farið til Cannes með Thorne til að gera barnsmóður sína, Kortney Kardashian, öfundsjúka. En Kardashian er stödd þar með ungum kærasta sínum, fyrirsætunni Younes Bendjima.
Fyrr í vikunni birtust myndir af Disick og hinni 19 ára gömlu Thorne á sundlaugarbakkanum. Hún skrifaði hins vegar í gær á Twitter að hún værir ekki hrifin af glamúrlífinu í Cannes. En tístið kom í kjölfar þess að Disick var kominn með Bartoli á bakkann til sín.
Yo this #cannes fancy life isn't for me
— bella thorne (@bellathorne) May 25, 2017
A post shared by CHLOÉ BARTOLI (@chloebartoli) on Oct 1, 2016 at 6:36pm PDT