Helstu verðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, Gullpálminn svonefndi, hefur fallið í skaut myndarinnar „The Square“ eftir sænska leikstjórann Ruben Östlund. Þetta var opinberað á hátíðinni rétt í þessu.
Þó myndin, sem þykir á köflum sprenghlægileg, hafi fengið góðar viðtökur á hátíðinni var ekki við því búist að hún hlyti aðalverðlaunin. Leikstjórinn sjálfur virtist að minnsta kosti í áfalli þegar hann tók við verðlaununum og hrópaði „Guð minn góður, Guð minn góður!“
Sjá stiklu úr myndinni: