Ofurfyrirsætan Miranda Kerr giftist stofnanda og framkvæmdastjóra Snapchat, Evan Spiegel á laugardaginn síðastliðinn á heimili þeirra í Brentwood í Kaliforníu.
„Þetta var lítið persónulegt brúðkaup,“ sagði heimildarmaður E! Online en aðeins voru um 50 manns í brúðkaupinu þar á meðal háttsett fólk og fyrirsætur.
Kerr tilkynnti um trúlofunina í júní á síðasta ári en þá hafði parið verið saman í ár. Þetta er annað hjónaband Kerr en hún giftist leikaranum Orlando Bloom árið 2010 en þau skildu árið 2013 saman eiga þau soninn Flynn. Þetta mun hinsvegar vera fyrsta hjónaband Spiegel.