Mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney og leikarinn George Clooney eignuðust tvíbura í morgun, þetta staðfestir E! Online.
Kynjahlutföllin munu haldast jöfn á Clooney-heimilinu og hafa tvíburarnir fengið nöfnin Ella og Alexander. Fæðingin gekk vel og öllum heilsast vel. Þetta er fyrstu börn þeirra hjóna en Amal er 39 ára og George 56 ára.
Fréttir af þunguninni bárust í febrúar en móðir George, Nina Clooney, upplýsti um kynin í viðtali við Vogue.