Tveir eldri fílar brugðust skjótt við og björguðu 11 mánaða gömlum fílskálfi þegar sá stutti datt ofan í sundlaug í dýragarðinum í Seúl í Suður-Kóreu.
Samkvæmt Huffington Post var fílskálfurinn að reyna fá sér að drekka þegar hann steyptist ofan í sundlaugina. Móðir hans og annar fíll hjálpuðu fílnum upp úr.
Á myndbandinu að neðan má sjá gott viðbragð fílana og hvernig þeir hlupu út í laugina og hjálpuðu kálfinum upp úr.