Ariel Winter gat ekki orða bundist í vikunni eftir að slúðurblað hafði birt frétt þess efnis að hún héldi kærasta sínum, Levi Meaden, uppi. En hún harðneitar fréttunum og virðist öskureið.
Modern Family-leikkonan tekur það skýrt fram á Instagram að hún sé með aðstoðarmanneskju annars vegar og eigi kærasta hins vegar og það sé ekki sami maðurinn. „Ég myndi aldrei borga kærastanum neins konar vasapening, né mundi hann samþykkja það ef ég byðist til þess,“ skrifaði Winter.
Tíu ára aldurmunur er á þeim en Winter er 19 ára á meðan Meaden er 29 ára. Skötuhjúin hafa verið töluvert í kastljósinu upp á síðkastið en leikkonan er dugleg að birta myndir af þeim á samfélagsmiðlum.
A post shared by ARIEL WINTER (@arielwinter) on May 24, 2017 at 5:04pm PDT