Mel B stendur í skilnaði við kvikmyndaframleiðandann Stephen Belafonte. Hann krefst þess að kryddpían borgi sér himinháar upphæðir í fata-,matar-og húsnæðisstyrk. Mel B kallaði kröfur hans hinsvegar draumóra og ætlar ekki að borga þessar upphæðir.
Samkvæmt TMZ krafðist Belafonte að Mel B borgaði sér 450 þúsund á mánuði í matarstyrk, 200 þúsund á mánuði í fatastyrk og rúma milljón á mánuði í húsnæðisstyrk. Auk þess sem að Belafonte segist þurfa 80 þúsund krónur í símastyrk á mánuði.
Mel B er ekki á þeim buxunum að borga þessar upphæðir og hefur mótmælt. En þessi fyrrum tengdadóttir Íslands telur fáránlegt að borga svo mikið í matarkostnað enda væri hún að borga honum jafn mikið á hverjum degi og fjögra manna fjölskylda kemst upp með á einni viku.
Hún segist heldur ekki þurfa borga honum fatastyrkinn enda tók hann öll fötin sín þegar hann flutti út. Þegar kemur að húsnæðismálum þá sér hún ekki ástæðu fyrir því að borga þak yfir höfuð hans þar sem hann dvelur bara hjá vinum sínum.