Claudia Sierra, tveggja barna móðir frá Texas, undirgekkst átta lýtaaðgerðir á þriðjudaginn til að verða líkari forsetafrú Bandaríkjanna, Melaniu Trump.
Samkvæmt Fox News sagði lýtalæknirinn Franklin Rose að Sierra væri ein af fjölmörgum konum sem hafði beðið um Melaniu-fegrunaraðgerðina.
„Fyrir mér sýnir Melania kraft og styrk, hún er forsetafrú okkar og ég hlakka til að líta meira út eins og hún og verða betri útgáfa af sjálfri mér og að það sjáist á útlitinu,“ sagði Sierra í fréttatilkynningu.
Sierra lét meðal annars minnka á sér brjóstin, breyta nefinu, fór í fitusog, lét lyfta augnlokunum og rassinum.