Bandaríski leikarinn Charlie Sheen hefur verið kærður fyrir að hafa með gáleysislegum hætti gert konu sem hann hafði samfarir við berskjaldaða fyrir HIV. Konan segir Sheen hafa verið svo ósvífinn að hann hafi kallað sig göfugan fyrir að segja henni frá sjúkdómnum eftir að þau sváfu saman.
Frá þessu greinir slúðurvefurinn TMZ og vísar þar til kæru sem vefurinn hefur undir höndum. Í kærunni kemur hvergi beinum orðum fram að um Sheen sé að ræða heldur ðaeins að hinn ákærði hefði greint frá HIV-sjúkdómnum í sjónvarpi 17. nóvember 2015, daginn sem Sheen fór í sjónvarpsþáttinn Today og sagði frá því að hann væri greindur með sjúkdóminn.
Konan sem er upprunalega frá Rússlandi segir að skömmu eftir að hún hitti kærða hefðu þau stundað kynlíf og á endanum, óvarið kynlíf. Hún segir að þegar Sheen sagði henni fréttirnar hefði hann sagt henni að taka tvær töflur til að koma í veg fyrir að hún smitaðist af sjúkdómnum.