Brad Pitt hlýtur að teljast eftirsóttasti piparsveinninn í Hollywood. Fyrirsætan Elle Macpherson og leikkonan Sienna Miller eru sagðar hafa heillast af leikaranum.
Samkvæmt The Sun voru Sienna Miller og Brad Pitt bæði á Glastonbury-tónlistarhátíðinni um helgina þar sem þau eru sögð hafa haldist í hendur og strokið hvort öðru.
Daily Mail greinir síðan frá því að Pitt og Macpherson hafi sést saman á stefnumóti í LA og var mikið í daður í gangi samkvæmt heimildarmanni. „Hún snerti handlegg hans og sveiflaði hárinu aftur fyrir axlir,“ sagði heimildarmaðurinn. „Hann hló að öllu sem hún sagði hallaði sér nálægt.“
Ekki er langt síðan fréttir bárust þess efnis að ofurfyrirsætan væri flutt út af heimili sínu og eiginmanns síns, Jeffrey Soffer.