Ryan Reynolds bjargaði einu sinni lífi litla frænda síns eftir að hann hafði setið skyndihjálparnámskeið. Greindi hann frá þessu á Instagram-síðu sinni.
Leikarinn tók námskeiðið með áherslu á ungabörn og sagðist hafa skemmt sér vel. Hann mælti með að allir tækju svona námskeið en konan hans, Blake Lively, birti sams konar mynd á Instagram fyrr um daginn þar sem hún greinir frá mikilvægi þess að taka slíkt námskeið.
Hjónin eiga saman tvö börn, hinn tveggja ára gamla James og níu mánaða dóttur, og hafa þau talað mjög opinskátt um foreldrahlutverkið og hápunkta og lágpunkta sem því fylgja.
A post shared by Ryan Reynolds (@vancityreynolds) on Jun 26, 2017 at 8:56pm PDT
A post shared by Blake Lively (@blakelively) on Jun 26, 2017 at 10:39am PDT