Bandaríska söngkonan Beyoncé Knowles hefur birt fyrstu myndina af tvíburum sínum og rapparans Jay-Z, í tilefni þess að mánuður er liðinn frá fæðingu þeirra. Deildi hún myndinni á Instagram-síðu sinni fyrir þremur klukkustundum, en þegar hafa þrjár milljónir líkað við myndina.
Á myndinni má sjá Beyoncé sjálfa með tvíburana í fanginu, umvafða blómum. Undir hana skrifaði hún: „Sir Carter og Rumi eins mánaðar í dag.“
Þar með staðfesti söngkonan sögusagnir um nöfnin, sem fóru á kreik eftir að hjónin sóttu um höfundarrétt á nöfnunum tveimur. Tryggðu þau þannig að enginn annar gæti hagnast á nöfnunum.
Fyrir eiga hjónin dótturina Blue Ivy, sem er fimm ára.
Beyonce tilkynnti óléttu sína á Instagram í febrúar, sem varð strax líkaðasta mynd á samfélagsmiðlinum.
Sir Carter and Rumi 1 month today. 🙏🏽❤️👨🏽👩🏽👧🏽👶🏾👶🏾
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Jul 13, 2017 at 10:10pm PDT