Truflaður tíðarandi

Hunter S. Thompson.
Hunter S. Thompson.

Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Jón Agnar Ólason, gefur þýðingu á bók Hunters S. Thompson, Fear and Loathing in Las Vegas, eða Uggur og andstyggð í Las Vegas, fullt hús stiga og segir hana eina þessara bóka sem allir verða að lesa minnst einu sinni.  

Jón Agnar skrifar: „Maður er nefndur Hunter S. Thompson, blaðamaður og rithöfundur. Of langt mál væri að gera nafntogaðri og nánast goðsagnakenndri persónu hans tilhlýðileg skil hér í inngangi þessarar umfjöllunar en nafn hans er einatt tengt við skrif þau er kallast „gonzo“ blaðamennska þar sem persónuleg upplifun blaðamanns er í forgrunni og frásögnin, sem er í fyrstu persónu, dregur ríkulegan dám af þeim sem ritar, hugsunum hans og áliti, um leið og hann tekur þátt í kringumstæðunum.

Bókin Fear and Loathing in Las Vegas kom fyrst út árið 1971 og er grundvallarverk í gonzo-fræðunum. Hér segir frá því er sögumanni er fengið það verkefni að skreppa til Las Vegas til að fjalla þar um mótorhjólakeppnina Mint 400. Þangað bregður hann sér með bílskottið sneisafullt af allra handa eiturlyfjum, ásamt hinum snargeggjaða Dr. Gonzo, sem er í senn vinur sögumanns og lögfræðingur hans. Ekki svo að skilja að sá löglærði sé neitt í áttina að kjölfestu eða haldreipi til heilbrigðis fyrir sögumann, öðru nær.

Lögfræðingurinn étur dóp af enn meiri dugnaði ef eitthvað er og lifir bókstaflega á mörkum þessa heims og stjórnlausrar vímu. Úr verður samfellt sækadelískt sýrutripp þeirra félaganna, stútfullt af kynlegum kvistum, kostulegum uppákomum og svo ofsalegum eituráhrifum að stundum má minnstu muna að illa fari, ýmist fyrir söguhetjurnar eða þá sem á vegi þeirra verða.

Úr kvikmynd Terry Gilliam, Fear and Loathing in Las Vegas, …
Úr kvikmynd Terry Gilliam, Fear and Loathing in Las Vegas, sem byggð er á samnefndri bók.

Ofsóknaræðið allsráðandi

Höfundurinn Thompson hataðist alla tíð við Richard Nixon, ríkjandi Bandaríkjaforseta á þeim tíma er bókin var skrifuð og kom út; þótti hann óheiðarlegur óþverri sem dró stjórnmál í heimalandinu niður á áður óþekkt plan með lygum, svikum, hlerunum og annars lags svínaríi. Vantraust samlanda hans á ráðandi öflum var algert og pólitísk paranoja nánast almenn stemning í bandarísku þjóðfélagi. Þessi tíðarandi endurspeglast ljóslega alla bókina í gegn, ómenguð fyrirlitning á yfirvöldum, og kristallast fyrst með dásamlega fjarstæðukenndum hætti þegar okkar maður á vettvangi fær annað verkefni til að skrifa um.

Eins og umfjöllunin um Mint 400 hafi ekki verið nógu geggjuð þá er seinna viðfangsefnið gersamlega galið: málstofa ríkissaksóknara á þjóðarráðstefnu um fíkniefni og hættuleg eiturlyf, innan um hundruð af fíkniefnalögreglumönnum. Hreint absúrd uppákoma og lesandinn grenjar hreinlega úr hlátri meðan hver sálarháskinn rekur annan og tvímenningarnir eru ýmist drukknir, skakkir, timbraðir eða helgrillaðir af ofskynjunum. Einna bestu sprettina á Dr. Gonzo sem fer á hreint feiknarlegum kostum með reglulegu millibili nánast frá upphafi bókar til enda. Í upphafi ævintýris þurfa tvímenningarnir að útvega sér upptökutæki, en raftækjabúðin er lokuð þegar þeir koma þar að; þeir töfðust nefnilega af því djöflaskata drap vegfaranda fyrir augum þeirra á Sunset-breiðgötunni – nema hvað. Tækið fá þeir en það gengur ekki vandræðalaust. Það fer afleitlega í lögfræðinginn:

„Við komum aftur,“ galaði hann. „Einn daginn sprengi ég þennan fjandans stað í tætlur! Ég er með nafnið þitt á kvittuninni! Ég mun komast að því hvar þú býrð og kveikja í húsinu þínu!“

„Þetta ætti að fá þá til að hugsa sinn gang,“ muldraði hann þegar við keyrðum í burtu. „Náunginn var nojaður og geðveikur, hvort sem er. Það er auðvelt að bera kennsl á slíka menn.“ (bls. 27)

Sama er upp á teningnum síðar þegar sá löglærði reynir að selja fjórum settlegum ferðamönnum frá miðríkjunum heróín með því að æpa á milli bíla á ferð. Þegar engin eru viðbrögðin er Gonzo blessaður við það að sturlast algerlega og öskrar og æpir á fjórmenningana eins og vitfirringur. Þegar leiðir skilur svo milli bílanna skömmu síðar horfir málið hins vegar öðruvísi við honum:

„Þetta Oklahoma-fólk var orðið dálítið spennt [...] Ég hefði átt að úða niður þetta gerpi ... glæpahneigður geðsjúklingur, algjörlega bilaður ... maður veit aldrei hvenær svona menn missa sig.“ (bls. 185) Annað er eftir því og ferðalag þeirra félaganna í viðvarandi ugg og andstyggð á fjandsamlegu umhverfinu í Las Vegas og nágrenni er hin besta skemmtun þótt hnausþykk víman keyri reglulega um þverbak og rúmlega það.

Uggur og andstyggð í Las Vegas.
Uggur og andstyggð í Las Vegas.

Framúrskarandi vel þýdd

Eins og gefur að skilja er kúnst að skila svo sérstökum prósa – sem bókin óneitanlega er – skammlaust yfir á íslensku. Undirritaður hefur reyndar ekki lesið frumútgáfuna á ensku en engu að síður blasir við að vel hefur tekist til. Stíllinn er grípandi og skemmtilegur, allt frá hnyttni upp í hláturrokur.

Heiðurinn á Jóhannes Ólafsson en hann útskrifaðist frá Háskóla Íslands fyrir ári með meistaragráðu í ritlist og var þýðing bókarinnar lokaverkefni hans. Ekki verður annað sagt en Jóhannes fari vel af stað því stemning sú sem bókin er svo fræg fyrir lifnar við á síðunum og úr verður samfelldur skemmtilestur.

Þegar við bætist sögulegt mikilvægi bókarinnar sem tíðarandaspegill á mjög sérstökum umbrotatímum í bandarísku samfélagi má segja að hér sé komin ein þessara bóka sem allir verða að lesa minnst einu sinni. Það sem meira er; það má lofa góðri skemmtun ef slegist er í för með þeim félögunum, uppdópuðum og ofsóknaróðum.

Að lokum verður ekki hjá því komist að minnast á frábærar myndskreytingar snillingsins Ralphs Steadmans sem birtust í upprunalegu útgáfunni og útgefandi hefur góðu heilli látið fylgja með. Þær smellpassa efninu enda í senn gassalegar og gallsúrar. Kápumynd er að sama skapi ljómandi flott.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes