Leikarinn Jarad Leto minntist Linkin Park-söngvarans Chester Bennington á Instagram á einlægan hátt en Bennington framdi sjálfsmorð í síðustu viku.
Leto birti mynd af Bennington og skrifaði við hana einlægan texta. Hann segist muna eftir brosi Bennington, hlátri hans, gáfum, góðmennsku og hæfileikum. Auk þess segist Leto hafa lært margt af því að fylgjast með Bennington, sérstaklega þegar kemur að skuldbindingu, góðmennsku, dugnaði, að ná draumum sínum og um ást.