Í hljóðupptöku af neyðarlínusímtali bílstjóra Chesters Benningtons sem TMZ birti kemur fram að ráðskona Linkin Park-söngvarans kom fyrst að líki hans eftir að hann hengdi sig í síðustu viku.
Á hljóðupptökunni má heyra ráðskonuna öskra og gráta en hún kom hlaupandi út úr húsi Benningtons í Los Angeles þegar bílstjórinn kom til að ná í hann. Á meðan bílstjórinn hringdi í neyðarlínuna hringdi ráðskonan í eiginkonu söngvarans.
„Ég er bílstjóri og ég var bara að koma á staðinn og ráðskonan hans kom út og sagði að hann hefði drepið sig,“ má heyra bílstjórann segja. „Ég hef ekki séð hann. Ég sit hérna inni í bíl.“