Donald Trump fékk nóg af fyrirsætunni Chrissy Teigen og lét loka á hana á twitteraðgangi sínum. En Teigen, sem er ekki mikill aðdáandi Trumps, hefur ekki farið leynt með skoðanir sínar á samfélagsmiðlum.
„Lol engum líkar vel við þig,“ skrifaði hin 31 árs gamla fyrirsæta eftir að Trump kvartaði yfir því að hann nyti ekki stuðnings sumra flokkfélaga sinna í repúblikanaflokknum. Teigen sagði að þessi athugasemd sín hefði gert útslagið eftir að hafa hatað Trump í níu ár.
After 9 years of hating Donald J Trump, telling him "lol no one likes you" was the straw pic.twitter.com/MhZ6bXT1Dp
— christine teigen (@chrissyteigen) July 25, 2017