Yolanda Hadid vildi ef til vill ekki missa af rassamyndaæðinu og birti mynd af sér á dögunum í peysu og á þveng við vatnið Constance á landamærum Þýskalands, Austurríkis og Sviss.
Hadid er ekki óvön að sitja fyrir en hún er fyrrverandi fyrirsæta. Það sem meira er þá er hún móðir Gigi og Bellu Hadid en þær eru á meðal vinsælustu fyrirsæta heims í dag.
Móðir þeirra hefur því ekki viljað vera eftirbátur þeirra og ákvað að smella í eina rassamynd. Yolanda er sjálf vinsæl og er með um 2,4 milljónir fylgjenda á Instagram. Auk þess hefur hún komið fram í raunveruleikaþættinum The Real Housewifes of Beverly Hills.
A post shared by YOLANDA (@yolanda.hadid) on Jul 24, 2017 at 9:42pm PDT