Knattspyrnustjarnan Cristiano Ronaldo virðist ekki vera mótfallinn þeirri hugmynd elsta sonar síns að eiga sjö börn. En Ronaldo tjáði sig um sístækkandi barnahóp sinni við fjölmiðla í Kína.
Ronaldo, sem er á ferð með Nike í Kína, var að sögn Daily Mail spurður út í fjölskylduna. Hann sagði að sonur sinn, Cristiano Ronaldo yngri, væri mjög ánægður með systkini sín. „Hann hefur það fínt og segist vilja fleiri bræður og systur. Hann vill sjö, töfratöluna, og ég held að það sé gott,“ sagði Ronaldo. En knattspyrnumaðurinn leikur í treyju númer sjö.
Ronaldo er nýbúinn að fá tvíbura til sín eftir að staðgöngumóðir gekk með þá. Ronaldo viðurkenndi einnig að kærasta hans, Georgina Rodriguez, væri ólétt þegar hann var í fríi á Ibiza á dögunum. Knattspyrnukappinn á þó eftir að gefa frá sér formlega yfirlýsingu.