Íslendingar á heilsíðu í NY Times

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson og Kristinn Sigmundsson óperusöngvari deildu heilsíðu í New York Times í vikunni en það er ekki á hverjum degi sem tvær greinar um Íslendinga sjást hlið við hlið í stærsta dagblaði Bandaríkjanna.

Á heilsíðunni er stór mynd þar sem Kristinn Sigmundsson gnæfir yfir fjölda fólks er hann syngur í óperunni Don Giovanni í New York. Í greininni gefur blaðamaður New York Times sýningunni glimrandi dóma.

Fyrir neðan þá grein er mynd af Víkingi þar sem hann situr við píanó og undir henni er viðtal við hann þar sem hann talar meðal annars um tónleika sína á Mozart-hátíðinni í New York.   

Kristinn Sigmundsson söngvari.
Kristinn Sigmundsson söngvari. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes