Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey heldur því fram að samband sitt við Stedman Graham hefði ekki enst eins lengi og það hefur gert ef þau hefðu gengið í hjónaband. En Winfrey og Graham hafa verið saman í 31 ár.
Winfrey segir að hún hafi einu sinni spurt Graham að því hvað hefði gerist ef þú hefðu gengið í hjónaband. „Við værum ekki saman,“ sagði Graham. Parið var trúlofað tímabundið árið 1992. Í samtali við Vogue segir Winfrey að hjónaband krefjist annars konar hugsunar.
Winfrey segir túlkun Grahams á því hvað það þýði að vera eiginmaður og eiginkona hefði verið of hefðbundið. „Og ég hefði ekki getað passað inn í það,“ segir spjallþáttadrottningin.