Fólk um allan heim bíður spennt eftir bardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor en bardaginn fer fram eftir rúma viku. Stjörnurnar eru þar engar undantekning og er talið að þær muni flykkjast á bardagann.
Frettaveitan TMZ hefur greint frá því að Angelina Jolie, Drake, Elon Musk, Diddy, Mark Whalberg, Denzel Washington, Charlize Theron, Jamie Foxx, LeBron James og Adami Levine verði meðal áhorfenda.
TMZ telur að þetta sé aðeins hluti af þeim stjörnum sem munu mæta en fleiri eru taldar hafa keypt miða.