Jerry Lewis látinn

Jerry Lewis fyrir miðri mynd ásamt vinum í níræðisafmæli sínu …
Jerry Lewis fyrir miðri mynd ásamt vinum í níræðisafmæli sínu í New York á síðasta ári. AFP

Bandaríski skemmtikrafturinn Jerry Lewis er látinn, 91 árs að aldri. Lewis var meðal annars þekktur fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Nutty Professor og The Bellboy.

Lewis var einn þekktasti grínleikari síðustu aldar og reis frægðarsól hans hæst á sjötta og sjöunda áratugnum. Hann var einnig þekktur handritshöfundur. 

Leikarinn lést á heimili sínu í Las Vegas í dag. 

Lewis lék í nokkrum kvikmyndum hin síðari ár og var með uppistand í Las Vegas á síðasta ári þar sem hann kom fyrst fram á fimmta áratugnum. 

Skoðanir Lewis voru oft á tíðum umdeildar og þurfti hann til dæmis að biðjast afsökunar á ummælum sínum um samkynhneigða árið 2007. Þá lét hann oft ummæli falla sem mörgum þóttu til marks um kynþáttafordóma hans.

Lewis lýsti sér sjálfum sem sérlega óþolinmóðum manni. Hann glímdi við margvísleg heilsufarsvandamál og var háður verkjalyfjum. 

Ítarleg grein Variety um feril Lewis má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes