Söngvarinn Robin Thicke á von á barni með kærustu sinni, fyrirsætunni April Love Geary. CNN greinir frá þessu.
Geary birti sónarmynd á instagramsíðu sinni um helgina þar sem hún tilkynnti að þau ættu von á barni 1. mars.
Thick á sjö ára son úr fyrra hjónabandi með leikkonunni Paulu Patton en hún fékk nálgunarbann á söngvarann eftir skilnað þeirra. Forræðisdeilur yfir syni þeirra kláruðust á föstudaginn.
Söngvarinn og kærasta hans eru nú stödd á Havaí ásamt syni hans þar sem þau njóta lífsins en þau hafa verið í sambandi síðan 2014, þegar hann var enn giftur fyrrverandi konu sinni.
A post shared by April Love Geary (@aprillovegeary) on Aug 17, 2017 at 2:08pm PDT