Leikarinn Michael Douglas verður brátt afi en elsti sonur hans á von á barni.
Sonur Michael Douglas, Cameron, og kærasta hans, jógakennarinn Vivian Thribes, hafa verið saman síðan í janúar í fyrra sem er rétt eftir að honum var sleppt úr haldi eftir tæplega sjö ára fangelsisvist.
Cameron Douglas, 37 ára, var dæmdur árið 2010 í fimm ára fangelsi fyrir sölu og vörslu metamfetamíns. Dómurinn var þyngdur um tvö ár í einangrun eftir að Douglas viðurkenndi að hafa smyglað eiturlyfjum inn í fangelsið.
Samkvæmt heimildum People ætlar Cameron að skrifa ævisögu sína þar sem hann segir frá öllu, allt frá því að tilheyra einni virtustu fjölskyldunni í Hollywood í að enda í fangelsi vegna eiturlyfjafíknar.
Samkvæmt sama heimildarmanni er Michael Douglas mjög spenntur að verða afi en Cameron Douglas er eina barnið úr fyrrum hjónabandi leikarans við Diandra Luker. Nú er Michael Douglas giftur leikkonunni Catherine Zeta-Jones og á með henni tvö börn.