Raunveruleikastjarnan Heidi Montag birti myndbönd af sér á samfélagsmiðlum í gær að gera hörkuæfingar með bumbuna út í loft en hún lætur óléttuna ekki stöðva sig í að halda sér í formi.
Montag, sem er komin átta mánuði á leið, lyfti lóðum og gerði maga-, rass- og kálfaæfingar með einkaþjálfara sínum sér til halds og trausts.
„Meira er meira,“ skrifaði hún undir myndböndin sín en Montag er þekkt fyrir að beita öllum aðferðum til þess að halda sér í formi. Árið 2011 rataði hún í heimsfréttirnar þar sem að hún sagðist hafa farið í tíu lýtaaðgerðir á líkama sínum og æfi allt að 14 klukkutíma á dag í ræktinni til þess að verða „fullkomin“.
Eftir æfingarnar fagnaði raunveruleikastjarnan með því að fá sér eplasafa í kampavínsglasi.
Montag er þekktust fyrir hlutverk sitt í raunveruleikaþáttunum The Hills en barnsfaðir hennar, Spencer Pratt, fór einnig með hlutverk í þeim þáttum.