Hvað ætli einkenni fyrstu 30 dagana í lífi pandahúns?
Þessari spurningu hefur nú verið svarað af starfsmönnum Beauval-dýragarðsins í Frakklandi sem hafa sett saman myndband sem sýnir fyrstu 30 daga pandahúnsins Mini Yuan Zi. Óhætt er að fullyrða að myndbandið er eins krúttlegt og þau gerast:
Eins og sjá má snýst lífið um að nærast og kúra í mömmufangi, auk þess sem áhugavert er að sjá hvernig litarhaft húnsins kemur jafnt og þétt í ljós.
Móðirin, Huan Huan, fæddi tvíbura en annar lést stuttlega eftir að hann kom í heiminn.
Birgitte Macron, forsetafrú Frakklands, hefur tekið ástfóstri við pönduhúninum og fékk það ábyrgðamikla hlutverk að vera guðmóðir hans.