Bítillinn Ringo Starr var ekki að skafa af því þegar hann var spurður út í Brexit í þættinum Newsnight á BBC í síðustu viku. Trommarinn hvetur bresku ríkisstjórnina til þess að að keyra Brexit í gegn.
Starr segir að það sé búið að kjósa, niðurstaðan var eins og hún var og nú þurfi að klára málið. Sjálfur segir hann að hann hefði kosið Breta út úr Evrópusambandinu. „Ég held að það sé rétta leiðin. Ég held að það að stjórna landinu sínu sé rétta leiðin,“ sagði Starr í viðtalinu.
"I would have voted to get out" - @ringostarrmusic urges the government to hurry up with Brexit, saying he thinks "it's a great move" pic.twitter.com/DsEMoLpJmq
— BBC Newsnight (@BBCNewsnight) September 14, 2017