Svo virðist sem að leikkonan Halle Berry sé búin að finna ástina aftur en hún birti mynd af sér með breska upptökustjóranum Alex Da Kid á Instagram.
Miðað við myndina virðist sem skötuhjúin séu meira en bara vinir. Að sama skaði birti Da Kid sömu mynd á Twitter.
Samkvæmt E! Online kynntist parið í gegnum sameiginlega vini og hefur verið að hittast í einhverja mánuði.
Berry sótti um skilnað frá eiginmanni sínum Oliver Martinez í október 2015 eftir að hafa verið gift honum í tvö ár. Skilnaðurinn gekk í gegn rúmu ári seinna. Saman eiga þau hinn þriggja ára gamla Maceo. Berry á einnig Nöhlu sem er níu ára sem hún átti með Gabreil Aubry.
My.....balance... pic.twitter.com/uAAMNmo6Gn
— Alex Da Kid (@AlexDaKid) September 19, 2017