E! Online greinir frá því að förðunarfræðingurinn Annamarie Tendler sakar leikarann Ben Affleck um að hafa káfað á sér í Golden Globe-partíi árið 2014. Ekki er langt síðan Affleck bað leikkonuna Hilarie Burton afsökunar á að hafa klipið í brjóst hennar.
„Ég myndi líka vilja fá afsökunarbeiðni frá Ben Affleck sem kleip í rassinn á mér á Golden Globe-partíi árið 2014,“ tísti Tendler. „Hann gekk að mér, tók um rassinn á mér og þrýsti fingri sínum inn í rassinn á mér.“
Tendler segist eins og svo margar aðrar konur ekki hafa talað um atvikið. „Ég sagði ekki neitt en ég hef hugsað mikið um það hvað ég myndi segja ef ég hitti hann aftur,“ skrifaði Tendler.
Ben Affleck baðst afsökunar á því að hafa gripið í brjóst One Tree Hill-leikkonunnar Hilarie Burton í sjónvarpsþætti árið 2003 en þá var leikkonan 21 árs.