Meghan Markle er nú að klára tökur á sjöundu þáttaröð af lögfræðidramanu Suits. Leikkonan er nú sögð hafa tilkynnt framleiðendum þáttanna að hún muni ekki snúa aftur í áttundu þáttaröðina enda er ekki hægt að vera leikkona í Hollywood og prinsessa í Bretlandi.
Tilkynnt var um samband leikkonunnar og Harry Bretaprins fyrir tæpu ári en parið byrjaði að stinga saman nefjum sumarið 2016. Orðrómur um konunglega trúlofun flýgur nú fjöllum hærra.
The Daily Star greinir frá þessu og heldur því jafnframt fram að skötuhjúin ætli að tilkynna trúlofun sína fyrir jól. „Meghan veit að hún getur ekki leikið og á sama tíma verið prinsessa og er glöð með að fórna þessum starfsframa,“ sagði heimildarmaður. „Hún nýtur þess virkilega að vinna með Unicef og mun auka góðgerðarskyldur sínar þegar hún verður fullgildur meðlimur konungsfjölskyldunnar.“
Fyrir skömmu mætti Markle á Invictus-leikanna en prinsinn er upphafsmaður leikanna. Þykir viðvera Markle hafa sýnt hversu alvarlegt sambandið er.