Elísabet Englandsdrottning hefur mokgrætt á hestunum sínum síðustu 30 árin. Hún er sögð hafa grætt rúmlega 6,7 milljónir punda á hestunum síðustu 30 árin en það samsvarar um 935 milljónum íslenskra króna.
Hello greinir frá því að hestum Elísabetar gangi vel á skeiðvellinum og hafa þeir unnið hátt í fimm hundruð sinnum. Hún hefur aldrei grætt jafnmikið og á síðasta ári en hún vann hátt í 78 milljónir. Árið 2017 hefur líka verið gott ár hjá drottningunni en hún hefur grætt rúmar 57 milljónir á hestunum það sem af er ári.
Drottningin fær þó ekki allar milljónirnar beint í budduna en tamningamennirnir fá stærsta hlutann af vinningsfénu. Drottningin er þekkt fyrir hestaáhuga sinn og fór hún fyrst á bak þegar hún var aðeins þriggja ára. Þrátt fyrir að vera orðin 91 árs fer hún enn í útreiðartúra.