Egypska tónlistarkonan Shyma fékk tveggja ára dóm fyrir hvetja til ólifnaðar. Þetta á hún að hafa gert með tónlistarmyndbandi sem hún gaf sem þótti of kynferðislegt.
The Telegraph greinir frá því að Shyma sé á leiðinni í tveggja ára fangelsi en hún var handtekinn stuttu eftir að hún gaf út myndbandið við lagið I have Issues. Í myndbandinu sést hún dansa á undirfötum áður hún fer inn í kennslustofu fulla af karlmönnum, þar hellir hún síðan mjólk yfir banana og borðar hann.
Hér má sjá brot úr myndbandinu:
Andstæðingar myndbandsins byrjuðu fljótlega að tala gegn myndbandinu og átti áhrifamikill bloggari og kynnir, Marwan Younis, stóran þátt. Shyma baðst afsökunar en það kom ekki í veg fyrir handtökuna.