Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur og Katrín, brosa sínu breiðasta ásamt börnum sínum þeim Georgi og Karlottu á jólakortsmyndinni í ár. Engin merki um væntanlegt barn þeirra er þó að finna á myndinni.
Kensington-höll birti í dag, mánudag, myndina sem prýðir jólakortið frá hjónunum í ár. Á Twitter-síðu hallarinnar segir að myndin haf verið tekin fyrr á árinu og er það væntanlega skýringin óléttukúluleysinu.
Þau Katrín og Vilhjálmur eiga von á sínu þriðja barni í apríl og er nú byrjað að móta fyrir óléttukúlunni og fatastíll Katrínar breyttur eftir því.