CBS tapaði milljörðum á James Corden

Var James Corden orðinn of dýr fyrir CBS?Hér er hann …
Var James Corden orðinn of dýr fyrir CBS?Hér er hann ásamt söngkonunni, Adele við upptökur á síðasta Carpool Karaoke. Skjáskot/Instagram

Spjallþáttur breska sprelligosans James Corden, The Late Late Show, lauk nýverið göngu sinni eftir átta ár á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. Samkvæmt innanbúðarmönnum á þátturinn að hafa tapað miklum peningum á hverju ári yfir göngu sína og valdið erfiðleikum fyrir CBS. 

The Late Late Show var löngu orðinn óarðbær og það vel áður en lokaserían fór í loftið,“ skrifaði Brian Stelter, fyrrum fréttastjóri CNN í grein fyrir Los Angeles Magazine. Framleiðslukostnaðurinn var kominn vel yfir níu milljarða íslenskra króna en tekjurnar voru vel undir sex milljörðum íslenskra króna.

Vildi flytja heim

Spjallþáttastjórnandinn greindi frá því í apríl 2022 að hann ætlaði að hætta sem stjórnandi The Late Late Show þar sem hann vildi flytja heim til Englands ásamt konu sinni og þremur börnum.

Nú virðist sem peningamál gætu hafa spilað stórt hlutverk í brotthvarfi Corden. „CBS hafði ekki efni á að halda honum lengur,“ sagði einn ónefndur stjórnandi við Stelter. Heimildarmaðurinn bætti einnig við að Corden „hefði staðið frammi fyrir margra milljóna dala launaskerðingu eða uppsögnum á starfsfólki.“

Corden stýrði stjörnum prýddum lokaþætti sínum hinn 27. apríl síðastliðinn en gestir hans voru meðal annars Will Ferrell og Harry Styles. Söngkonan Adele tók síðustu bílferðina um Los Angeles með Corden í einum vinsælasta þáttalið hans, Carpool Karaoke.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg