Enn eitt Love Island-parið hætt saman

Ella Barnes og Mitchel Taylor eru hætt saman,
Ella Barnes og Mitchel Taylor eru hætt saman, Skjáskot/Instagram

Love Island-stjörnurnar Ella Barnes og Mitchel Taylor eru hætt saman, en samband þeirra entist aðeins í mánuð eftir að þau yfirgáfu ástareyjuna.

Fyrrverandi parið hafnaði í fimmta sæti í sumarþáttaröð Love Island 2023, en þau birtu bæði yfirlýsingu á Instagram-reikningum sínum þar sem þau tilkynntu sambandsslitin. 

„Ég vildi bara koma hingað og gefa ykkur öllum uppfærslu þar sem þið eigið skilið að vita því ég væri ekki þar sem ég er án ykkar. Því miður höfum við Mitch ákveðið að slíta sambandi okkar. Ég vildi endilega að hlutirnir myndu ganga upp og ég er svekkt yfir því að ferðalag okkar saman sé á enda. Ég óska Mitch alls hins besta og vona að hann finni hamingju,“ skrifaði Barnes. 

Í yfirlýsingu Taylor segir hann fjarlægðina á milli þeirra hafa reynt mikið á sambandið, en hann er búsettur í Sheffield á meðan Barnes er búsett í fjögurra klukkustunda akstursfjarlægð frá honum, í Kent.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg