Andrés prins sagður í kynsvalli með ungum stúlkum

Minnst er á Andrés prins 69 sinnum í umræddum skjölum.
Minnst er á Andrés prins 69 sinnum í umræddum skjölum. AFP

Andrés prins er sagður hafa tekið þátt í kynsvalli með stúlkum undir lögaldri þegar hann dvaldi á heimili Jeffrey Epsteins. Þetta kemur fram í nýbirt­um dóms­skjöl­um þar sem greint er frá fólki sem tengd­ist kyn­ferðis­brota­mann­in­um og auðjöfr­in­um Jef­frey Ep­stein.

Andrés prins er nefndur 69 sinnum í skjölunum sem telja um 900 blaðsíður.

Í skjölunum kemur fram að kynlífsþræll Epsteins, sem heitir í skjölunum Jane Doe 3, var skipað að hafa kynmök við Andrés prins á meðan á kynsvalli stóð á eyju Epsteins í Karabíska hafinu. Þar voru fjölmargar stúlkur undir lögaldri. Þá var henni einnig gert að stunda kynlíf með honum í Lundúnum og í New York. Henni var sagt að gera allt sem Andrés prins vildi. Nafn Jane Doe 3 birtist ekki í skjölunum en Virginia Giuffre sagðist síðar hafa þurft að sofa hjá prinsinum þrisvar sinnum.

Þá er Andrés prins einnig sagður hafa lagt hönd á brjóst Johonnu Sjoberg þegar hópmynd var tekin af þeim saman með brúðu.

Fleiri eru nefndir í skjölunum eins og til dæmis Bill Clinton sem sagður er „vilja þær ungar“. Þá eru þar einnig nefndir menn á borð við Stephen Hawking sem sagður er hafa tekið þátt í kynsvalli sem og lögfræðingurinn Alan Dershowitz. Dershowitz hefur hins vegar fagnað birtingu skjalanna því þá verði loks ljóst að hann hafi ekkert sér til saka unnið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson