„Þessar upptökur eru til“

Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell.
Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell. AFP

Sarah Ransome segist hafa verið þvinguð til þess að draga til baka fullyrðingar sínar um upptökur um kynlífsleiki valdamanna á heimili Epsteins. Þetta sagði hún í viðtali við Good Morning Britain en stendur nú við fyrri orð sín.

Ransome segist hafa dregið til baka ummæli um upptökur því henni hafi verið hótað af Maxwell og „öðrum“.

Í viðtalinu segir hún það ekkert leyndarmál að gerðar hafi verið upptökur.

„Þessar upptökur eru til. Fólkið sem veit um þær er örugglega mjög hrætt um að þær komist í dreifingu,“ sagði Ransome.

Aðspurð um faldar myndavélar á eyju Epsteins sagði Ransome að það hafi ekki verið neitt leyndarmál að allt var tekið upp. Á heimilum hans voru rándýrar eftirlitsmyndavélar.

„Mörg fórnarlömb hafa komið fram og staðfest frásögn mína og annarra. Ég hef einnig horft á myndskeiðin á skrifstofunni hans. Þegar ég var hjá Epstein þá var ég reglulega minnt á hvað myndi gerast fyrir mig og fjölskyldu mína ef ég myndi einhvern tímann stíga fram.“ 

Nú segist Ransome vera reiðubúin til þess að bera vitni fyrir dómstólum um það sem hún sá úr eftirlitsmyndavélum, valdamikla karlmenn að hafa kynmök við aðrar stelpur. 

Þá er bandaríska alríkislögreglan undir þrýstingi að birta allar ljósmyndir sem teknar voru af sönnunargögnum sem fundust við húsleit á heimilum Epsteins á sínum tíma.

Í nýbirtum skjölum um Epstein kemur fram að lög­fræðiteymi Jef­frey Ep­stein hafi reynt að grafa und­an áreiðan­leika Söruh Ran­some, þar sem Ran­some hafi á ein­um tíma­punkti full­yrt að hún ætti þess­ar upp­tök­ur en svo seinna meir dregið þá staðhæf­ingu til baka. Lög­fræðing­ar Ep­steins sögðu að þetta sýndi fram á að Ran­some skorti trú­verðug­leika.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson