Óvæntur tvífari Glanna Glæps í Love Island

Eru Anton Danyluk og Glanni Glæpur tvífarar?
Eru Anton Danyluk og Glanni Glæpur tvífarar? Skjáskot/Facebook

Facebook-hópurinn Love Island Memes logaði eftir að birt var mynd af tvífara Love Island-stjörnunnar Anton Danyluk, en það er enginn annar en Glanni Glæpur úr Latabæ sem Stefán Karl Stefánsson lék.

Um þessar mundir er svokölluð All Stars-sería af Love Island í fullum gangi þar sem þátttakendur úr fyrri þáttaröðum gefa ástinni annað tækifæri. Þar á meðal er Danyluk sem sló fyrst í gegn þegar hann tók þátt í fimmtu þáttaröð raunveruleikaþáttanna árið 2019. 

Á dögunum birtist færsla um Danyluk í Facebook-hóp sem tileinkaður er þáttunum, en alls eru rúmlega 255 þúsund meðlimir í hópnum. Í færslunni var birt samsett mynd af Danyluk og Glanna Glæp með yfirskriftinni: „Ég get ekki afséð þetta.“

Færslan vakti mikla athygli í hópnum og hefur þegar fengið yfir þúsund „likes“, 107 deilingar og 576 ummæli. Af ummælum að dæma virðast margir vera sammála því að Danyluk og Glanni Glæpur séu mjög líkir. 

Færslan hefur vakið mikla athygli í Facebook-hópnum.
Færslan hefur vakið mikla athygli í Facebook-hópnum. Skjáskot/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg