Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til jarðar með miklum látum.
Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er mikilvægt og hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð og um leið er það viðvörun að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Síðast en ekki síst er það ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér og öðrum.