Myndir frá menningarnótt – Kjósið þær bestu!

Í ár verður menningarnótt Reykjavíkurborgar haldin í 20. sinn. Til að halda upp á þau tímamót gefst lesendum mbl.is kostur á að kjósa bestu myndirnar frá menningarnóttum undanfarinna 19 ára. Besta myndin frá hverju ári verður sýnd á Austurvelli á sjálfan daginn.

Hægt er að kjósa í mesta lagi eina mynd frá hverju ári. Ekki er nauðsynlegt að velja myndir frá öllum árunum 19. Smellið á smámynd til að tilnefna hana fyrir viðkomandi ár (valdar myndir fá grænan ramma). Smellið á tengilinn Skoða stærri við hverja mynd til að skoða hana nánar. Að lokum þarf að smella á hnappinn Greiða atkvæði neðst á síðunni til að taka þátt í kosningunni.