Elísabet Ormslev er án efa ein kröftugasta söngkona ungu kynslóðarinnar. Hér skellir hún sér í skóna hennar Adele og syngur nýjasta smellinn hennar, Hello, sem kom út fyrir stuttu síðan og setti netið á hliðina nýverið.
Elísabet er yngsti nemandinn sem hefur verið tekinn inn í söngdeild FÍH, og ekki að ástæðulausu. Eins og heyra má í myndbandinu á hún ekki í nokkrum vandræðum með halda í við Adele í stórum og háum tónum sem einkenna lögin hennar.
Elísabet er einn þátttakanda í sjónvarpsþættinum The Voice sem sýndur er á SkjáEinum. Í kjölfar þátttökunnar hafa henni borist margar fyrirspurnir um hvar væri hægt að hlusta á hana syngja. Þó Elísabet sé vön söngkona og hafi margoft komið fram hefur hún lítið tekið upp, svo það var ekkert annað í stöðunni en að svara kallinu og taka upp lag.
Aðspurð af hverju hún ákvað að velja lag með Adele var svarið einfalt „Hún er bara svo frábær!“
Hér má hlusta á áheyrnarprufur Elísabetar í The Voice