Gísli Brynjar Kristinsson er þekktur sem rokkarinn í The Voice og í fyrsta þætti beinu útsendinganna má vissulega segja að hann hafi haldið þeirri stefnu. Gísli söng lagið Man of Constant Sorrow með Soggy Bottom Boys.
„Mér fannst þetta mjög flott. Maður var kominn hálfa leið til Ameríku!“ Sagði Unnsteinn Manuel þjálfari Gísla. Svala Björgvins var á sama máli, „ég fíla þetta í tætlur, að taka bluegrass lag og gera það rokkað. Ég fíla röddina þína og hef alltaf gert.“
Flutningurinn vann þó ekki nægilega hylli en Gísli var ekki valinn áfram í næsta hluta þáttanna af þjóðinni eða þjálfaranum.