16 ára stelpa neglir Aguilera í Voice

Hin 16 ára gamla Alexandra Dögg Einarsdóttir gerði sér lítið fyrir og rúllaði upp Christina Aguilera smellinum Hurt í blindprufum þriðja þáttar The Voice Ísland, sem sýndur verður í Sjónvarpi Símans annað kvöld.  

Fyrir flutninginn fékk hún ekki bara standandi lófatak frá salnum, allir fjórir þjálfararnir ýttu á takkana á stólunum sínum og sneru sér við æstir að fá Alexöndru í sitt lið. Salka Sól var svo spennt að hún hélt áfram að ýta á takkann þegar hún var löngu búin að snúa sér við, „þetta var æðislegur flutningur!“

Alexandra hafði pabba sinn sér til halds og trausts í prufunum og fylgdist hann með flutningnum baksviðs. Þar var greinilega stoltur faðir á ferð, en honum vöknaði um augun þegar hann fylgdist með dóttur sinni slá í gegn hjá þjálfurunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes