Tveir indverskir hermenn voru látnir ganga um naktir eftir að hafa reynt að nauðgað stúlku í indverska héraðinu Kashmir. Reiðir þorpsbúar lömdu hermennina, aflæddu þá og löbbuðu með þá um markaðinn. Lögreglan hefur kært mennina fyrir tilraun til nauðgunar. Talsmaður hersins segir ásakanirnar rangar og þorpsbúa hafa verið hvattir áfram af öfgamönnum.
Lögregla sprengdi táragas og skaut byssuskotum í loftið til þess að ná mönnunum af reiðum múgnum, sem höfðu rakað af þeim hárið, klætt þá úr hverri spjör og gengu með þá í skrúðgöngu um markaðstorginu.