Fékk 300 þús. fyrir sálina sína

Maður frá Nýja-Sjálandi seldi nýverið sál sína til Heljar. Þ.e.a.s. pítsukeðjunnar Heljar (e. Hell Pizza) á Nýja-Sjálandi.

Walter Scott er einungis 24 ára en hann bauð sálina sína upp á netinu þar sem hann sagði hana ekki koma að miklu gagni. „Ég get ekki séð hana, snert hana eða fundið fyrir henni en ég get hinsvegar selt hana og ætla því að losa mig við hana og bjóða þeim sem býður hæst.“

Pítsukeðjan keypti sálina þó ekki fyrr en eftir að auglýsingin var tekin niður af uppboðsvefnum en margir höfðu kvartað yfir því að hún væri smekklaus. Alls skoðuðu yfir 30 þúsund manns auglýsinguna og bárust yfir 100 tilboð í sálina áður en auglýsingin var tekin út.

Margir buðu í gríni, t.d. var hæsta boðið skráð rúmlega 300 þúsund kr. en hæsta verðið, sem boðið var í sálina af alvöru, voru um 35 þúsund kr.

Heljar pítsur buðu Scott um 300 þús. kr. fyrir sálina. Markaðsstjóri fyrirtækisins sagðist ekki vita um nokkurn betri stað fyrir sálina að vera.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einhver reynir að selja sál sína á uppboðsvef. Árið 2001 reyndi hinn tvítugi háskólanemi Adam Burtle að selja sál sína á eBay en hætt var við uppboðið eftir að fyrirtækið úrskurðaði að til að sala reyndist réttmæt yrði að vera um áþreifanlegan hlut að ræða. 

Til að koma í veg fyrir slíkt bjó Scott til afsal sem fulltrúar Heljar munu sækja á morgun. Það mun verða hengt upp í höfuðstöðvum fyrirtækisins í borginni Auckland.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren