Ósiðleg framkoma í Dubai

Tvær erlendar konur hafa verið dæmdar í mánaðar fangelsi í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir að kyssast og strjúka hvor annarri á baðströnd í borginni.

Áfrýjunardómstóll í Dubai staðfesti dóminn, sem undirréttur hafði kveðið upp. Um er að ræða þrítuga konu frá Líbanon og 36 ára búlgarska konu, sem báðar héldu fram sakleysi sínu. 

Konurnar voru ákærðar fyrir að kyssast, þukla hvor á annarri og sýna af sér annað ósiðlegt athæfi. Að sögn blaða í Dubai er fyrsta málið af þessu tagi sem kemur til kasta dómstóla í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Konunum verður vísað úr landi eftir að þær hafa afplánað dóm sinn.

Þótt Sameinuðu arabísku furstadæmin leggi nú mikla áherslu á alþjóðlega ferðaþjónustu er stjórnskipunum afar íhaldssöm og samkynhneigð og vændi eru ekki liðin.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes